Alger óvissa um Róbert Aron: Fann eitthvað smella Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. mars 2018 11:00 Róbert Aron Hostert. Vísir/Ernir
Róbert Aron Hostert fór meiddur af velli í leik ÍBV og Stjörnunnar í næstsíðustu umferð Olísdeildar karla í gær og er óttast að hann hafi meiðst á öxl. Hann kom ekki meira við sögu eftir af farið út af snemma í síðari hálfleik. Arnar Pétursson, þjálfari ÍBV, sagði að fyrsta skoðun eftir leik í gær hafi leitt í ljós að Róbert hafi ekki farið úr lið eins og óttast var í fyrstu. „Hann lenti illa á vinstri öxlinni og fann eitthvað smella,“ sagði Arnar við Vísi í dag. „Hann þarf að fara í ómskoðun og þá kemur betur í ljós hvernig staðan er. Hann hefur hingað til alveg sloppið við axlarmeiðsli en nú er bara að bíða og sjá hvað verður.“ Það er nóg fram undan hjá ÍBV. Eyjamenn mæta Fram í lokaumferð deildarinnar á miðvikudag þar sem liðið getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn. Þá mætir liðið SKIF Krasnodar frá Rússlandi í 8-liða úrslitum Áskorendakeppni EHF en fyrri leikurinn fer fram í Rússlandi um helgina. „Það er alveg óvíst um þátttöku Róberts, bæði á miðvikudag og um helgina. Við verðum bara að bíða og sjá.“ Hornamaðurinn Theódór Sigurbjörnsson spilaði ekki með ÍBV í dag eftir að hafa slasast á auga í fögnuði ÍBV eftir bikarmeistaratitil liðsins fyrr í mánuðinum, líkt og fjallað hefur verið um. Arnar segir enn óvíst hvenær hann geti spilað á ný.
Olís-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: ÍBV – Stjarnan 29-28 | ÍBV með pálmann í höndunum Eyjamenn eru á toppi Olísdeildarinnar og standa vel að vígi í baráttunni um deildarmeistaratiilinn fyrir lokaumferðina. 18. mars 2018 22:45 Mest lesið Klopp ráðinn til Red Bull en skýr klásúla í samningnum Fótbolti Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Enski boltinn Draumur að rætast hjá bræðrunum Fótbolti „Verð að líta á sjálfan mig sem KR-ing“ Fótbolti Kærasti Fallons Sherrock niðurbrotinn eftir sárt tap Sport Þorsteinn kynnti Bandaríkjafara Fótbolti Dómarar í ævilangt bann eftir kynlífsmyndband Fótbolti Þriðji Maldini-ættliðurinn sem er valinn í landsliðið Fótbolti Hópurinn sem fer til Bandaríkjanna Fótbolti Hvar er þessi? „Þetta er eitthvað biblíudæmi“ Körfubolti Fleiri fréttir „Ég veit að næsta lyftingaræfing verður öflug hjá þeim“ Valsmenn lágu í valnum eftir góða byrjun „Aðalmunurinn hvernig líkamlegir burðir eru“ FH átti erfitt uppdráttar án lykilleikmanna Vandaverk vængbrotinna FH-inga: „Gefum allt í botn“ Ómar Ingi frábær í öruggum sigri Magdeburg Orðaður við Ísland í fyrra en virðist taka við Svíum Haukar unnu einvígið með 35 marka mun Valskonur flugu áfram í aðra umferðina Arnór lét til sín taka í þriðja sigri Fredericia í röð Óðinn Þór öflugur ÍBV sótti sigur í Garðabæinn Risasigrar hjá Val og Haukum Selfoss komið á blað Fjölnir með frábæran sigur á Stjörnunni Uppgjörið: FH - Valur 23-30 | Valur á flugi og FH ekki eins án Arons Sigursteinn Arndal: FH liðið langt frá sínu besta Grótta tyllti sér á toppinn og KA fékk fyrstu stigin Magdeburg missti heimsmeistaratitilinn „Slúðrað og talað um mig í öllum hornum“ Haukar og HK sættust á stig eftir æsispennandi leik Nítján marka stórsigur hjá Haukum Elliði markahæstur, öruggt hjá Andra og Andreu Óðinn markahæstur í toppslagnum Uppgjörið: Fram - Valur 25-29 | Valur vann stórveldaslag Íslendingaliðið með fullt hús stiga eftir fimm umferðir Þórir sáttur með eftirmanninn: „Hann er sá rétti“ Magdeburg í úrslit fjórða árið í röð Bjarki Már í úrslit á kostnað Barcelona Arftaki Þóris fundinn: „Þetta eru stórir skór að fylla í“ Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: ÍBV – Stjarnan 29-28 | ÍBV með pálmann í höndunum Eyjamenn eru á toppi Olísdeildarinnar og standa vel að vígi í baráttunni um deildarmeistaratiilinn fyrir lokaumferðina. 18. mars 2018 22:45