Ný landsliðstreyja íslenska landsliðsins í knattspyrnu kostar 10.990 krónur í flestum verslunum en sama verð er á barna- og fullorðinsstærð. Borið hefur á því að fólki þyki treyjan nokkuð dýr, sérstaklega í tilfelli barnanna. Aðalsteinn Leifsson vakti til að mynda athygli á þörf fyri ódýrari og einfaldari landsliðstreyjur í barnastærðum svo fleiri ungir aðdáendur geti fest kaup á slíkri, enda hafi eftirspurnin líklega aldrei verið meiri.
„Stefán Jón fékk landsliðstreyju um leið og hún var til í verslunum en ég er viss um að það hafi ekki öll börn á Íslandi sem vildu fengið treyjur þar sem þær kostuðu um 11.000 kr. Ég tók eftir því að í Sviss, þar sem við búum, voru nánast öll börn í einfaldri útgáfu af svissnesku landsliðstreyjunni, enda fékkst hún fyrir um 1.000 kr í verslunum,“ skrifar Aðalsteinn.

Í samtali við Vísi segir Guðni, sem setti sig í samband við Aðalstein vegna málsins í dag, að verðið á opinberum landsliðstreyjum í almennri sölu endurspegli gæði þeirra.
„Þessi núverandi treyja er alveg eins og keppnistreyja, með öllu því besta varðandi efni og fleira, þannig að þetta er sama treyja og leikmenn landsliðsins spila í,“ segir Guðni en bætir við að nýjar og ódýrari treyjur frá KSÍ og Errea séu væntanlegar, eins og rakið verður hér að neðan.
„Verðið á treyjunni hér á Íslandi miðað við það sem þekkist annars staðar á landsliðstreyjum er sambærilegt, og það á líka við um þessar ódýrari útgáfur af treyjum.“
Þá segir Guðni umræða um ódýrari treyjur ekki hafa komið áður inn á borð KSÍ, að sér vitandi, en nú sé umhverfið óneitanlega annað en verið hefur undanfarin ár sökum velgengni íslenska karlalandsliðsins.
Sjá einnig: Svona lítur HM-búningur Íslands út
Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi
Þorvaldur Ólafsson, eigandi Errea á Íslandi, segir í samtali við Vísi að von sé á heilli fatalínu tengdri íslenska landsliðinu í aðdraganda HM í sumar. Þar verði ódýrari kostir í boði, bæði í barna- og fullorðinsstærðum.
„Ég get glaður upplýst þig um það að það kemur heil lína af fatnaði tengdum landsliðinu, þar á meðal tvær gerðir af einfaldari KSÍ-treyjum sem verða á mun lægra verði. Þær verða bæði í barna- og fullorðinsstærðum, þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi,“ segir Þorvaldur. Þá verða auk þess bolir, peysur, buxur, æfingasett og hettupeysur í hinni nýju landsliðslínu.
Aðspurður um verð á hinum treyjunum segir Þorvaldur þær verða „mun ódýrari“ en aðallandsliðstreyjan enda „einfaldri í gerð.“ Fatalínan verður kynnt á næstu vikum og kemur í sölu fyrir HM í sumar.
Fréttin hefur verið uppfærð.