Tottenham tók risaskref í átt að Meistaradeildinni Arnar Geir Halldórsson skrifar 1. apríl 2018 16:45 Dele Alli hafði betur gegn Eden Hazard vísir/getty Leikurinn byrjaði vel fyrir heimamenn því Alvaro Morata kom Chelsea yfir með skallamarki eftir fyrirgjöf Victor Moses eftir hálftíma leik. Christian Eriksen kom Tottenham aftur inn í leikinn á lokamínútu fyrri hálfleiks með föstu skoti utan teigs sem Willy Caballero réði ekki við. Gestirnir gerðu svo út um leikinn á fjögurra mínútna kafla eftir rúmlega klukkutíma leik og sá Dele Alli um markaskorun. Vandræðagangur í varnarleik Chelsea sem enska vonarstjarnan færði sér í nyt. Átta stigum munar nú á Chelsea og Tottenham í fjórða og fimmta sæti deildarinnar og ljóst að Chelsea þarf nánast á kraftaverki að halda til að spila í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Enski boltinn