Salah með 30. markið í öruggum sigri Liverpool Anton Ingi Leifsson skrifar 14. apríl 2018 18:15 Ótrúlegur. vísir/getty Liverpool lenti í engum vandræðum með Bournemouth á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Eftir að hafa slegið út Man. City úr Meistaradeildinni í vikunni unnu Liverpool 3-0 sigur á Bournemouth á Anfield í dag. Veislan hófst strax á sjöundu mínútu er Sadio Mane kom Liverpool yfir en biðin var þó nokkuð löng eftir næsta marki. Liverpool hafði mikla yfirburði. Magnaður Mohamed Salah skoraði sitt 30. mark í deildinni á 69. mínútu eftir undirbúning Trent Alexander-Arnold og í uppbótartíma skoraði svo Roberto Firmino. 3-0 sigur Liverpool. Liverpool er í þriðja sætinu, stigi á eftir Man. Utd, en Bournemouth siglir lygnan sjó; eru í ellefta sætinu með 38 stig. Enski boltinn