Alfie Evans lést í nótt Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 28. apríl 2018 09:36 Breski drengurinn Alfie Evans þjáðist af taugahrörnunarsjúkdómi. Hann lést í nótt. vísir/afp
Breski drengurinn Alfie Evans lést í nótt á barnaspítalanum Alder Hey í Liverpool eftir að rúm vika hafði liðið frá því hann var tekinn úr öndunarvél. Mál Alfies litla fór hátt í fjölmiðlum þegar breskir dómstólar bönnuðu foreldrum hans að ferðast með hann til Ítalíu. Foreldrarnir töldu að læknismeðferð sem er í boði á Ítalíu myndi bæta ástand drengsins en álit lækna var að Alfie ætti enga von um bata og ennfremur að hann myndi ekki lifa af ferðalagið til Ítalíu. Dómstólar tóku undir með læknunum. Guardian greinir frá. Alfie, sem lést rúmlega tveggja ára að aldri, var með taugahrörnunarsjúkdóm og hafði verið meðvitundarlaus í um ár. „Baráttumaðurinn minn hefur lagt niður skjöldinn og fengið vængi...“ segir í stöðuppfærslu frá Tom Evens, föður drengsins sem segist vera alveg niðurbrotinn. Barátta foreldranna fyrir dómstólum hefur ekki aðeins tekið á litlu fjölskylduna heldur einnig starfsfólkið á barnaspítalanum sem var harðlega gagnrýnt á samfélagsmiðlum. Þegar niðurstaðan dómstóla lá fyrir tóku foreldrarnir starfsfólkið í sátt. Evans færir starfsfólkinu þakkir sínar og segist jafnframt vita að málið hafi líka reynst því erfitt.
Mest lesið „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Erlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Innlent Fleiri fréttir Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Sjá meira