Swansea daðrar enn við falldrauginn eftir tap gegn Chelsea

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Cesc Fabregas leggur boltann í netið
Cesc Fabregas leggur boltann í netið visir/getty
Chelsea marði sigur á lánlausum Swansea mönnum þegar liðin mættust á Liberty leikvangnum í Wales í dag í ensku úrvalsdeildinni. Mikilvægur sigur fyrir Antonio Conte og félaga sem eygja enn von um Meistaradeildarsæti.

Cesc Fabregas skoraði strax á fjórðu mínútu leiksins eftir undirbúning Eden Hazard og reyndist það eina mark leiksins.

Chelsea er nú tveimur stigum á eftir Tottenham sem situr í fjórða sætinu mikilvæga en síðarnefnda liðið á leik til góða gegn Watford á mánudag.

Swansea hinsvegar er einu stigi frá fallsvæðinu þegar þrjár umferðir eru eftir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira