Aron skoraði sigurmark Cardiff Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 21. apríl 2018 20:50 Aron Einar og félagar unnu lífs nauðsynlegan sigur. vísir/getty Aron Einar Gunnarsson skoraði sigurmark Cardiff gegn Nottingham Forest í ensku 1. deildinni í fótbolta í kvöld. Mark landsliðsfyrirliðans kom á 74. mínútu leiksins og var það fyrsta mark hans fyrir Cardiff síðan fyrir ári síðan. Aron skaut fyrirgjöf Sol Bamba í netið eftir aukaspyrnu. Heimamenn í Cardiff komust yfir á 35. mínútu með marki frá Sean Morrison áður en Liam Bridcutt jafnaði metin á 50. mínútu. Sigurinn kom Cardiff aftur upp í annað sæti dieldarinnar með 86 stig, stigi á undan Fulham og eiga Walesverjarnir einn leik til góða. Enski boltinn