Innlent

Ein milljón til viðbótar vegna kosningaárs

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Haraldur Sverrisson er bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Haraldur Sverrisson er bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkti á fundi sínum á dögunum að stjórnmálaflokkar í bænum myndu skipta með sér einni milljón króna í viðbótarstyrk frá Mosfellsbæ þar sem kosningar eru framundan.

Samkvæmt lögum um fjármál stjórnmálasamtaka er sveitarfélögum með fleiri en 500 íbúa skylt að veita stjórnmálasamtökum sem fengið hafa 5% atkvæða eða að lágmarki einn mann kjörinn í næstliðnum sveitarstjórnarkosninum, árleg framlög til starfsemi sinnar. Mosfellsbær hefur veitt stjórnmálasamtökum 1,5 milljón króna framlag í samræmi við þetta.

Í ljósi þess að það er kosningaár ákvað bæjarráð að hækka framlögin um eina milljón króna. Munu flokkarnir skipta með sér heildarupphæðinni, 2,5 milljónum króna.

Arnar Jónsson, forstöðumaður þjónustu og samskiptadeildar Mosfellsbæjar, segir í samtali við Vísi að upphæðin, 2,5 milljón króna, muni skiptast á milli flokkanna á þann veg að þeir flokkar, sem fengu yfir 5% í síðustu kosningum og/eða einn mann inn, fá 5/12 hluta upphæðarinnar. Þeir flokkar sem fá slíka niðurstöðu í kosningunum framundan fái 7/12 þeirrar upphæðar. Það sé allt samkvæmt lögum.

Valdimar Birgisson, oddviti Viðreisnar sem býður fram í fyrsta skipti, hafði í samtali við Vísilýst yfir áhyggjum sínum af því að nýir flokkar nytu ekki sammælis við úthlutun styrkja vegna kosninga.

Uppfært klukkan 11:20

Í fyrri útgáfu fréttarinnar kom fram að eldri flokkarnir nytu aukinna styrkja umfram þá nýju. Það hefur verið leiðrétt eftir að upplýsingar bárust frá Mosfellsbæ. Beðist er velvirðingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×