Japönsk lest rauk af stað 25 sekúndum á undan áætlun Gunnar Hrafn Jónsson skrifar 17. maí 2018 09:09 Lestarstjórinn var greinilega í ruglinu þegar hann óð af stað heilum 25 sekúndum á undan áætlun
Lestarfyrirtæki í Tókýó í Japan hefur beðist afsökunar á því að farþegalest fór af stað tuttugu og fimm sekúndum of snemma. Þetta er í annað sinn á innan við hálfu ári sem áætlun fyrirtækisins skeikar um tuttugu sekúndur eða meira. Það gerðist síðast í nóvember. Samkvæmt japönsku fréttaveitunni Japan Today lagði lestin af stað frá Tókýó klukkan ellefu mínútur yfir sjö um morguninn en átti ekki að fara af stað fyrr en tæplega tólf mínútur yfir. Í tilkynningu fyrirtækisins segir að mannlegum mistökum sé um að kenna, lestarstjóranum hafi einfaldlega borist rangar upplýsingar um brottfarartíma. Japanska lestarkerfið er afar skilvirkt og lestarnar almennt svo stundvísar að hægt er að stilla klukku eftir þeim. Af þeim sökum voru nokkrir farþegar rétt ókomnir á lestarpallinn þegar lestin æddi af stað 25 sekúndum fyrir áætlun og kvörtuðu þeir til fyrirtækisins. Það varð til þess að fyrrnefnd afsökunarbeiðni var gefin út.
Mest lesið Leiðtogi Hezbollah allur Erlent „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Innlent Verkfall á hjúkrunarheimilum ef lausn næst ekki á mánudag Innlent „Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Innlent „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Innlent Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Innlent Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Erlent Fleiri fréttir Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vinna að þriggja vikna vopnahléi á milli Ísrael og Hezbollah Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Sjá meira