Zidane ekki að eltast við landsliðsþjálfarastarfið Arnar Geir Halldórsson skrifar 12. júní 2018 23:30 Frakkar lyftu sínum fyrsta og eina titli fyrir 20 árum vísir/getty
Franska knattspyrnugoðsögnin Zinedine Zidane hefur verið orðaður við landsliðsþjálfarastöðuna hjá Frakklandi í kjölfar þess að hann hætti óvænt hjá þreföldum Evrópumeisturum Real Madrid á dögunum. Zidane þvertekur hins vegar fyrir að það hafi verið ástæðan og styður hann heilshugar við bakið á fyrrum liðsfélaga sínum á miðjunni hjá franska landsliðinu; Didier Deschamps. „Mikilvægast á öllu er að styðja við bakið á franska landsliðinu. Ástæðan fyrir því að ég hætti hjá Real er ekki sú að ég ætli að taka við Frakklandi.“ „Ég er stuðningsmaður Frakklands og ég vil að Frakkland verði Heimsmeistari í annað sinn,“ segir Zidane sem var í lykilhlutverki þegar Frakkland vann HM í fyrsta og eina skiptið; á heimavelli 1998. Hann kveðst ekki vera búinn að taka ákvörðun um framtíð sína en ljóst er að mörg stórlið, félagslið jafnt sem landslið, renna hýru auga til Zidane. „Ég veit ekki hvað ég mun taka mér fyrir hendur en mér líður vel og mun njóta þess að fylgjast með HM í rólegheitunum,“ segir Zidane jafnframt. Frakkland hefur leik á HM í Rússlandi næstkomandi laugardag þegar liðið mætir Ástralíu en Frakkar eru sömuleiðis með Peru og Danmörku í C-riðli.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Sjá meira