Aftur þarf Tottenham aukaleik gegn neðri deildar liði Arnar Geir Halldórsson skrifar 18. febrúar 2018 18:00 Fá að reyna sig á Wembley vísir/getty Stjörnum prýtt lið Tottenham heimsótti botnlið C-deildarinnar í 16-liða úrslitum enska bikarsins í dag og áttu flestir von á öruggum sigri gestanna. Ian Henderson kom heimamönnum hins vegar yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks eftir að Harry Winks gerði sig sekan um klaufaleg mistök. Staðan í leikhléi því 1-0 fyrir Rochdale. Lucas Moura jafnaði metin fyrir gestina snemma í síðari hálfleik og varamaðurinn Harry Kane hélt líklega að hann hefði tryggt Tottenham farseðil í 8-liða úrslitin þegar hann skoraði úr vítaspyrnu á 88.mínútu. Vel studdir heimamenn neituðu hins vegar að gefast upp og það skilaði þeim jöfnunarmarki því Steve Davies skoraði þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Liðin mætast því að nýju á Wembley til að útkljá hvort liðið kemst áfram en Tottenham þurfti einnig tvo leiki gegn Newport County í 32-liða úrslitum keppninnar. Enski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn