Fyrsta markalausa jafnteflið Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 12. ágúst 2018 14:30 Jóhann Berg í baráttunni í dag Vísir/Getty Southamtpon og Burnley skildu jöfn í fyrsta markalausa jafntefli nýs tímabils í ensku úrvalsdeildinni í dag. Jóhann Berg Guðmundsson spilaði nær allan leikinn fyrir Burnley. Gestirnir frá Burnley byrjuðu af krafti og áttu mörg skot að marki í upphafi. Leikurinn var mjög fjörugur og áttu bæði lið samanlagt 34 skot í leiknum. Joe Hart stóð vaktina í marki Burnley í leiknum eftir að hafa komið til félagsins í sumar vegna meiðsla Nick Pope. Hann stóð sig frábærlega í markinu og var það einna helst honum að þakka að Southampton náði ekki að skora í leiknum. Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley en var tekinn af velli undir lok leiksins. Enski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn