Vítaspyrna í uppbótartíma tryggði Brighton stig Anton Ingi Leifsson skrifar 17. september 2018 20:45 Murray skorar úr vítaspyrnunni. Vísir/Getty Southampton og Brighton gerðu 2-2 jafntefli í síðasta leik fimmtu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Jöfnunarmarkið kom í uppbótartímanum er Brighton fékk vítaspyrnu. Daniel Pierre Emil Højbjerg var fyrstur á blað. Hann kom Southampton yfir með frábæru þrumuskoti á 35. mínútu og Southampton leiddi 1-0 í leikhlé. Þegar rúmur klukkutími var liðinn braut Gaetan Bong á Danny Ings og klár vítaspyrna. Ings fór sjálfur á punktinn og skoraði af öryggi sitt þriðja mark í fyrstu fimm leikjunum. Gestirnir voru ekki af baki dottnir og eftir aukaspyrna barst boltinn á kollinn á varnarmanninum Shane Duffy sem stangaði boltann í netið framhjá sofandi leikmönnum Southampton. Í uppbótartíma fengu svo Brighton hornspyrnu. James Ward-Prowse gerðist brotlegur að mati Anthony Taylor. Á punktinn steig svo Glenn Murray á punktinn og skoraði af miklu öryggi. Lokatölur 2-2. Brighton er því með fjögur stig eftir fyrstu fimm leikina en Southampton eru með sjö stig. Samt sem áður tvö töpuð stig þar. Enski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn