Chelsea mistókst að endurheimta toppsætið Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 23. september 2018 14:30 Giroud fann ekki marknetið í dag vísir/getty Chelsea mistókst að endurheimta toppsætið í ensku úrvalsdeildinni af Liverpool þegar liðið gerði markalaust jafntefli við West Ham á útivelli. Þrátt fyrir að leikurinn hafi verið markalaus áttu bæði lið meira en nóg af færum til þess að skora mörk. Michail Antonio kom inn í lið West Ham fyrir Marko Arnautovic og hann fékk tvö dauðafæri á tveggja mínútna kafla undir lok fyrri hálfleiks en fór illa með það fyrra og Kepa Arrizabalaga varði frá honum í seinna skiptið. Upphaf seinni hálfleiks var nokkuð rólegt en á 67. mínútu var varamaðurinn Alvaro Morata kominn einn á móti Lukasz Fabianski í teignum upp úr hornspyrnu en skot hans fór í andlit markvarðarins. Andriy Yarmolenko fékk svo besta færi leiksins á 77. mínútu þegar hann var einn og yfirgefinn í vítateig Chelsea og fékk frábæra sendingu beint á kollinn, en skallin lélegur og hitti ekki á markið. Ross Barkley og Willian fengu sitt hvort færið í uppbótartíma leiksins en náðu ekki að stela sigrinum fyrir Chelsea. Úrslitin þýða að Liverpool er eina liðið eftir í deildinni með fullt hús. Chelsea fellur niður í þriðja sæti, niður fyrir Manchester City á markatölu. West Ham er í botnbaráttunni, tveimur stigum frá fallsæti. Enski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn