City valtaði yfir Jóa og félaga Dagur Lárusson skrifar 20. október 2018 16:00 Liðsmenn Pep léku á alls oddi í dag. vísir/getty Manchester City er komið með 23 stig í efsta sæti deildarinnar eftir sigur á Jóa Berg og félögum í Burnley. Það var markahrókurinn Sergio Aguero sem kom City á bragðið strax á 17. mínútu og var staðan 1-0 í hálfleiknum. Í seinni hálfleiknum fóru liðsmenn City upp um gír og skoruðu strax tvö mörk í byrjun hálfleiksins. Það fyrra skoraði Bernardo Silva á 54. mínútu og það seinna skoraði Fernandinho á 56. mínútu. Allt stefndi í 3-0 sigur City en Mahrez og Sane voru á öðru máli. Riyad Mahrez skoraði á 83. mínútu og kom City í 4-0 áður en Sane kom City í 5-0 í uppbótartíma. Þetta reyndust lokatölur leiksins en Jói Berg spilaði allan leikinn. City er því á eitt á toppnum, a.m.k. um stundarsakir eða þar til leik Liverpool og Huddersfield lýkur. Úrslit úr öllum leikjum dagsins:Bournemouth 0-0 SouthamptonCardiff 3-2 FulhamMan City 5-0 Burnley Newcastle 0-1 BrightonWest Ham 0-1 TottenhamWolves 0-2 Watford Enski boltinn