Jóhanna Vigdís nýr framkvæmdastjóri Almannaróms Atli Ísleifsson skrifar 25. október 2018 10:06 Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir. Mynd/Almannarómur
Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri Almannaróms, miðstöðvar um máltækni. Í tilkynningu frá stofnuninni segir að Jóhanna Vigdís hafi að undanförnu starfað sem framkvæmdastjóri atvinnu- og alþjóðatengsla hjá Háskólanum í Reykjavík og staðið fyrir uppbyggingu atvinnulífstengsla HR. Áður hafi hún verið forstöðumaður markaðssviðs HR. Jóhanna Vigdís hefur jafnframt gegnt stjórnendastöðum við Listahátíð í Reykjavík, hjá Straumi fjárfestingarbanka, Deloitte og Borgarleikhúsinu. „Að Almannarómi standa háskóla- og rannsóknastofnanir, fyrirtæki og félagasamtök. Meginhlutverk Almannaróms er að tryggja að íslenska standi jafnfætis öðrum tungumálum í hinu stafræna umhverfi og mun framkvæmdastjóri meðal annars bera ábyrgð á gerð samninga við stærstu tæknifyrirtæki heims og úthlutun fjármagns til rannsókna og innviðauppbyggingar á sviði máltækni,“ segir í tilkynningunni. Jóhanna Vigdís lauk AMP gráðu hjá IESE Business School í Barcelóna árið 2015, MBA námi frá HR 2005 og meistaraprófi frá Háskólanum í Edinborg árið 2003. Jóhanna Vigdís útskrifaðist með BA gráðu í bókmenntum frá Háskóla Íslands árið 1998. Jóhanna Vigdís er gift Riaan Dreyer og saman eiga þau fjögur börn.Sjálfseignarstofnun Almannarómur er sjálfseignarstofnun um eflingu máltæknilausna fyrir íslensku og vinnur að því að tryggja að íslenskan standi jafnfætis öðrum tungumálum í tækniheiminum. Stofnunin rekur miðstöð um máltækni samkvæmt samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið sem byggður er á verkáætlun um máltækni 2018-2022.
Íslenska á tækniöld Vistaskipti Mest lesið Átta sagt upp hjá Arion banka Viðskipti innlent „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Viðskipti innlent Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Viðskipti innlent Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Viðskipti innlent Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Viðskipti innlent Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Viðskipti innlent Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Viðskipti innlent Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Viðskipti innlent Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Enn eitt félag Quangs gjaldþrota Svekktur en ekki hissa á færri íbúðum í byggingu Færri íbúðir í byggingu en fyrir ári Gengi Icelandair flaug upp á við Vill laða að lágverðsverslun á Krókinn Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Fura Ösp nýr formaður stjórnar hjá Brandenburg Tekur við stöðu forstöðumanns þjónustu hjá Reitum Sjá meira