Mkhitaryan bjargaði stigi fyrir Arsenal gegn nýliðunum Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 11. nóvember 2018 18:45 Mkhitaryan bjargaði stigi á Emirates í dag vísir/getty Arsenal náði í jafntefli gegn nýliðum Wolves í ensku úrvalsdeildinni í dag. Nýliðarnir byrjuðu af krafti í dag og komust yfir strax á 13. mínútu leiksins. Mark Wolves skoraði Ivan Cavaleiro. Það virtist allt stefna í að Wolves næðu í stigin þrjú á Emirates vellinum í dag, en Henrikh Mkhitaryan var á öðru máli og jafnaði hann leikinn á 86. mínútu. Arsenal er enn í fimmta sæti deildarinnar, með 24 stig en liðið er þremur stigum á eftir erkifjendum sínum úr Lundúnarborg, Tottenham. Wolves siglir nokkuð lygnan sjó um miðbik deildarinnar og eru í 11. sæti með 16 stig. Enski boltinn