Óvíst er hvenær myndbandið er tekið en það var birt á Instagram-reikningi ljósmyndarans Ericu Mengouchian fyrir þremur dögum. Í því sést fjöldi ferðamanna virða fyrir sér brimið í Reynisfjöru. Nokkrir þeirra ná ekki að forða sér áður en stór alda skellur á þeim og í lok myndbandsins sést að viðstaddir taka á rás undan sjónum og upp með ströndinni. Engin slys virðast þó hafa orðið á fólki, ef marka má textann sem Mengouchian skrifaði við myndbandið.
„Brjálaðar öldur/veður! Þetta land er enginn brandari og þetta fólk veitir viðvörunarskiltunum ekki athygli. Sem betur fer komust allir aftur á land heilu og höldnu,“ skrifar Mengouchian við myndbandið, sem sjá má hér fyrir neðan. Fréttastofa hefur sent Mengouchian fyrirspurn vegna málsins.
Nokkur banaslys hafa einnig orðið í Reynisfjöru og nærliggjandi fjörum síðustu ár. Bandarísk kona á áttræðisaldri beið bana þegar brimalda hrifsaði hana út á dýpið árið 2007. Árið 2016 lést kínverskur ferðamaður um fertugt þegar stór alda sló honum í bergið. Síðast varð banaslys tengt briminu í janúar í fyrra þegar þýsk kona fór í sjóinn við Kirkjufjöru.
Ferðaþjónustuaðilar hafa kallað eftir því að gerðar verði frekari öryggisráðstafanir í Reynisfjöru og nærliggjandi fjörum vegna tíðra slysa. Lögregla hafði eftirlit með svæðinu um tíma eftir banaslysið í Reynisfjöru árið 2016 og þá var komið upp viðvörunarskiltum vegna slysahættu við sjóinn sama ár.
WAIT FOR IT... insane waves/weather! This place is no joke and these people don’t pay attention to the warning signs. Thankfully everyone got back up safely and they are ok. #Iceland #blacksandbeachView this post on Instagram
A post shared by Erica Mengouchian (@erica_mengouchian) on Nov 3, 2018 at 6:09am PDT