Þægilegur sigur Chelsea á botnliðinu Arnar Geir Halldórsson skrifar 2. desember 2018 13:45 Þægilegt hjá Chelsea í dag vísir/getty Chelsea átti ekki í teljandi erfiðleikum með Fulham í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en liðin áttust við í Lundúnarslag á Stamfodr Bridge í dag. Nýliðar Fulham hafa verið í vandræðum í vetur og það blés ekki byrlega fyrir þeim í dag þar sem Jean Michael Seri færði N´Golo Kante boltann á silfurfati snemma leiks. Kante óð upp völlinn og kom boltanum á Pedro sem skoraði. Fulham tókst ekki að ógna Chelsea að ráði og var í raun bara spurning hvenær heimamenn myndu gera út um leikinn. Það gerðist þó ekki fyrr en á 82.mínutu þegar varamaðurinn Ruben Loftus-Cheek skoraði. Chelsea þar með komið upp í 3.sæti deildarinnar, um stundarsakir hið minnsta, en Fulham er eftir sem áður í neðsta sæti deildarinnar. Enski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn