Innlent

Laugavegur lokaður bílum við Barónsstíg

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá vettvangi í morgun en hífa á húsið við Laugaveg 73 yfir á Hverfisgötu.
Frá vettvangi í morgun en hífa á húsið við Laugaveg 73 yfir á Hverfisgötu. vísir/vilhelm
Laugavegurinn er lokaður bílum milli Barónsstígs og Vitastígs í dag til klukkan 18.

Er það vegna þess að verið er að hífa húsið að Laugavegi 73 yfir á lóðina á Hverfisgötu 92, en gangandi vegfarendur komast leiðar sinnar um gangstétt.

Ekki er gert ráð fyrir að setja þurfi húsi á flutningsvagn að því er segir á vef Reykjavíkurborgar.

Laugvegurinn milli Barónsstígs og Vitastígs verður lokaður bílum til klukkan 18 í dag vegna flutninganna.vísir/vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×