Innlent

Vara við sjóböðum og fjöruferðum vegna hreinsun þrýstilagna

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Ráðlagt er að forðast sjóböð og fjöruferðir um helgina.
Ráðlagt er að forðast sjóböð og fjöruferðir um helgina. Vísir/Vilhelm
Þrýstilagnir frá dælustöðvunum við Hafnarbraut og Sæbólsbraut verða hreinsaðar frá morgundeginum 23. nóvember til og með mánudeginum 26. nóvember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ.

Ekki er gert ráð fyrir að dælustöðvarnar fari á yfirfall við þessar framkvæmdir en einhverjar líkur eru á að það geti gerst.

Ef ske kynni að nauðsynlegt reynist að setja dælustöðvar á yfirfall er ekki talið ráðlegt að stunda sjóböð eða fjöruferðir í Fossvogi á meðan á þessum framkvæmdum stendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×