Óttast krónuskort í bankakerfinu Kristinn Ingi Jónsson skrifar 21. nóvember 2018 07:30 Stefán Broddi Guðjónsson, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka
Lausafjáreignir stóru viðskiptabankanna þriggja í krónum drógust saman um 24 prósent eða um 86 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins, samkvæmt hagtölum Seðlabanka Íslands. Forstöðumaður greiningardeildar Arion banka segir margt benda til þess að eftirspurn eftir lánsfé sé orðin eða muni brátt verða mun meiri en framboðið. „Ég óttast að við gætum siglt inn í peningalegt aðhald sem er mun meira en stýrivextir Seðlabankans einir og sér gefa til kynna. Að við sköpum hér ástand þar sem myndast skortur á krónum sem dregur úr fjárfestingum og kælir hagkerfið mun meira en ástæða er til,“ segir forstöðumaðurinn, Stefán Broddi Guðjónsson, í samtali við Markaðinn. Lausafjárstaða bankanna – Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans – er mun sterkari í erlendum gjaldmiðlum en krónum. Lausafjárhlutfallið í krónum var 87 prósent í lok septembermánaðar, borið saman við 110 prósent í lok síðasta árs, og tala sumir viðmælendur Markaðarins um að krónuskortur hrjái bankakerfið. Í einstaka bönkum sé orðið auðveldara fyrir fyrirtæki að fá lán í erlendri mynt en krónum. Lausafjárstaða bankanna í heild – bæði erlendum gjaldmiðlum og krónum – er þó enn nokkuð rúm en til marks um það var lausafjárhlutfall þeirra 154 prósent í lok september. Reglubundið lágmark er til samanburðar 100 prósent. Stefán Broddi útskýrir að vaxtageta bankanna takmarkist af eigin- og lausafjárhlutfalli þeirra sem sé með því hæsta í Evrópu. Eiginfjárhlutfall bankanna sé nú lítið hærraen 22 prósenta eiginfjárkrafa þeirra og þá vilji bankarnir líklega ekki að lausafjárhlutfall þeirra í krónum verði mikið lægra. „Af þessu leiðir að mér finnst ótrúlegt að útlán bankanna í krónum vaxi stórum skrefum og ekki nema í takti við það sem hagnaður og þar með eiginfjáraukning bankanna leyfir,“ segir hann. Ekki bæti óróleikinn í efnahagslífinu úr skák. Verðbólga sé tekin að stíga og Seðlabankinn byrjaður að hækka skammtímavexti. „Þar með leitar sparnaður gjarnan í skammtímainnstæður, sem iðulega þarf að binda á innlánsreikningum í Seðlabankanum, á meðan lántakar vilja fremur taka krónur að láni til langs tíma. Þar með hækka langtíma útlánsvextir og færri ákveða að fjárfesta eða í það minnsta dregur úr hvata til að fjárfesta. En til þess er leikurinn gerður. Þannig dregur úr eftirspurn í hagkerfinu, það kólnar og verðbólga hjaðnar,“ segir Stefán Broddi.Minni þörf á stýrivaxtahækkun Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir þróunina áhugaverða en ekki að öllu leyti óvænta. Ekki sé ástæða til þess að hafa miklar áhyggjur af henni enn sem komið er. „Lausafjárstaðan er vissulega ekki eins rúm og hún hefur verið,“ nefnir hann og bætir við: „En hafa verður í huga að árin frá hruni hafa einkennst af mjög rúmri lausafjárstöðu í kerfinu sem endurspeglast til dæmis í því að virkir stýrivextir hafa allt þetta tímabil og fram á þennan dag verið nálægt lægri enda vaxtagangsins,“ segir Jón Bjarki. Enn sé töluvert svigrúm í kerfinu. „Við erum jafnframt á vendipunkti í efnahagsþróun þar sem það fer ekki illa á því að það hægi á útlánavexti. Hann hefur sem betur fer ekki farið úr böndunum en það hefur bætt í hann framan af þessu ári. Í því ljósi er tilfærsla virku skammtímavaxtanna, sem verður þá upp á við vegna þess að lausafjárstaðan í kerfinu í heild er ekki eins rúm og áður, eins konar ígildi aukins peningalegs aðhalds,“ segir Jón Bjarki. Að því leyti sem þessi þróun auki peningalegt aðhald geti þörfin á beinni stýrivaxtahækkun enn fremur minnkað. XJón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur ÍslandsbankaMargt stuðlar að hærri vöxtum Stefán Broddi segir góðu fréttirnar þær að „við höfum uppi í erminni fjölda spila“ til þess að koma í veg fyrir að skortur verði á krónum. Alls konar séríslenskar aðstæður haldi langtímavöxtum háum. „Líklega vegur þyngst raunávöxtunarviðmið lífeyrissjóðanna og áhrif þess á vexti á skuldabréfamarkaði,“ nefnir hann. Miklar fjárfestingar lífeyrissjóðanna erlendis á sama tíma og höft séu á fjárfestingar útlendinga í íslenskum skuldabréfum hafi auk þess skapað mikið ójafnvægi sem stuðli að hærri vöxtum en ella. „Ég held að fjármálastöðugleika verði ekki ógnað þó að útlendingar fái haftalaust að fjárfesta í langtímaskuldum íslenskra fyrirtækja í krónum. Á móti eykst vonandi skilvirkni fjármagnsmarkaðarins sem er að mínu viti eitt mikilvægasta verkefnið sem við stöndum frammi fyrir til þess að tryggja heilbrigt vaxtastig,“ segir Stefán Broddi. Einnig megi nefna bankaskattinn sem hækki vaxtastig í landinu. Stefán Broddi segir auk þess að þær háu eiginfjárkröfur sem gerðar séu til bankanna geri þá vissulega öruggari en um leið minnki þær útlánagetu bankanna og stuðli að hærri vöxtum. „Í eðli krafnanna felst að þær eiga að herðast þegar aðstæður krefjast en rýmka þegar aðstæður leyfa. Næst munu þær herðast í vor en ég hugsa þó að gangurinn í hagkerfinu í vor verði frekar þannig að kröfurnar ættu að rýmkast þannig að útlánageta bankanna geti stutt við hagkerfið en ekki dregið kraft úr því,“ segir hann. Þá bendir Stefán Broddi á að sértryggð skuldabréf bankanna með veði í íbúðarhúsnæði séu ekki enn metin veðhæf hjá Seðlabankanum í endurhverfum viðskiptum við bankana. „Mér finnst nokkuð borðleggjandi að bankinn muni næst ákveða að gera þau veðhæf. Það væri ágæt leið til að fjölga krónum í kerfinu og vonandi lækka fjármagnskostnað á húsnæðismarkaði. Ég held það muni ekki veita af nú þegar verulegt magn nýs íbúðarhúsnæðis er loks í byggingu og á teikniborðinu,“ segir Stefán Broddi.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ósætti með vinnubrögð Blackbox sem virðist á barmi gjaldþrots Viðskipti innlent Magga í Pfaff: „Ég man meira að segja hvar fyrsti kossinn var“ Atvinnulíf Ráðinn forstöðumaður Arion Premíu Viðskipti innlent Fengu ekki að tjá sig og sektin helminguð Neytendur Velgengni í New York: „Mér finnst ég ekkert hafa verið hér mjög lengi“ Atvinnulíf ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Neytendur Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Atvinnulíf Vona að Musk takmarki tolla Trumps Viðskipti erlent Fyrrverandi ferðamálastjóri opnar ráðgjafarstofu með syninum Viðskipti innlent Hrókeringar í framkvæmdastjórn Eimskips Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ósætti með vinnubrögð Blackbox sem virðist á barmi gjaldþrots Hrókeringar í framkvæmdastjórn Eimskips Fyrrverandi ferðamálastjóri opnar ráðgjafarstofu með syninum Ráðinn forstöðumaður Arion Premíu Birta Ósk og Jenna Kristín til Akademias Afkoma Orkuveitunnar 44 prósentum betri en í fyrra Kosningapróf Viðskiptaráðs: Mikil andstaða við sölu á Landsvirkjun Búið að draga tennurnar úr jagúarnum First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Hækka ekki verðtryggðu vextina „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Mikilvægt að verja þær gjaldeyristekjur sem ferðaþjónustan aflar Kerecis fólk fjárfestir í flugi Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Opna verslanir í Kringlunni á ný Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Kristján ráðinn til Advania Bein útsending: Raforkuöryggi, fyrir hverja? „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Vilja afnema álag á útsvar í Árborg á næsta ári Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“ Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni Sjá meira