Nýliðarnir skelltu Chelsea Anton Ingi Leifsson skrifar 5. desember 2018 21:45 Nýliðarnir gátu fagnað í kvöld. vísir/getty Wolves gerði sér lítið fyrir og skellti Chelsea í fimmtándu umferð ensku úrvalsdeildarinnar er liðin mættust á Molineux-leikvanginum í kvöld en lokatölur 2-1 sigur Wolves. Chelsea komst yfir á átjándu mínútu með marki Ruben Loftus-Cheek og það voru ekki margir sem bjuggust við því að nýliðarnir myndu koma til baka gegn sterku liði Chelsea. Raul Jimenez jafnaði metin á 59. mínútu og fjórum mínútum síðar skoraði Portúgalinn Diogo Jota sigurmarkið og tryggði Wolves afar kærkominn sigur. Chelsea er í þriðja sætinu, nú tíu stigum frá toppsætinu, en Wolves er í tólfta sæti deildarinnar með nítján stig. Nýliðarnir í fínum málum. Enski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn