West Ham með sinn fjórða sigurleik í röð Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 15. desember 2018 19:30 Snodgrass kom West Ham á bragðið vísir/getty West Ham vann sinn fjórða sigur í röð eftir nokkuð þægilegan sigur á Fulham. Robert Snodgrass kom West Ham yfir á 17. mínútu leiksins með mjög góðu skoti fyrir utan teig. Michail Antonio tvöfaldaði svo forystu West Ham eftir tæplega hálftíma leik með skalla eftir mistök í vörn Fulham. Ekki var skorað meira í leiknum, og nokkuð þægilegur sigur West Ham staðreynd. West Ham er nú komið upp í 9. sæti deildarinnar en liðið hefur verið á góðu skriði undanfarnar vikur en þetta var fjórði sigurleikur liðsins í röð. Fulham er hins vegar í basli á botni deildarinnar. Enski boltinn