City aftur á toppinn Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 15. desember 2018 14:30 Sterling fagnar marki sínu Vísir/Getty Manchester City endurheimti toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar af Liverpool með nokkuð öruggum sigri á Everton í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Everton byrjaði leikinn betur og átti fyrsta alvöru færið þegar Richarlison skallaði boltann rétt framhjá markinu úr dauðafæri strax á 15. mínútu. Það voru hins vegar heimamenn í Manchester City sem áttu fyrsta markið þegar Gabriel Jesus skoraði á 22. mínútu eftir hrikalega sendingu Yerry Mina út úr vörninni, beint á Ilkay Gundogan. Eftir markið tók City leikinn yfir en náði þó ekki að koma öðru marki á gestina í fyrri hálfleiknum, staðan 1-0 í hálfleik. Strax í upphafi seinni hálfleiks bætti Jesus við sínu öðru marki, Leroy Sane átti sendingu inn á teiginn sem Jesus skallaði fast í markið. Sendingin og skallinn mjög góð en mögulega hægt að setja spurningamerki við Jordan Pickford í marki Everton, skallinn var nokkuð beint á hann þó fastur væri. Það leit allt út fyrir að City ætlaði að sigla frekar þægilegum sigri heim en Dominic Calvert-Lewin minnkaði muninn fyrir Everton á 65. mínútu. Markið kom úr fyrsta skoti Everton á markrammann og aðeins þeirra þriðja skoti í leiknum.Jesus kemur City yfirvísir/gettyStrax eftir að markið kom frá Everton setti Pep Guardiola Raheem Sterling inn á. Sterling hafði byrjað á bekknum þrátt fyrir að hafa verið sjóðheitur að undanförnu. Tæpum þremur mínútum eftir að Sterling kom inn á var hann búinn að koma City aftur í tveggja marka forystu með sinni fyrstu snertingu í leiknum. Sending inn á teigin sem Mina nær ekki að hoppa upp í, Sterling var í hlaupinu inn á teiginn og enginn elti hann almennilega, auðveldur skalli og auðvelt mark. Gestirnir voru aðeins líflegri undir lokinn og var Calvert-Lewin nálægt því að bæta við sínu öðru marki en Ederson varði glæsilega frá honum. Niðurstaðan varð 3-1 sigur City sem fer á toppinn aftur með tveimur stigum meira en Liverpool sem spilar við Manchester United á Anfield á morgun. Kevin de Bruyne kom inn í lið City í síðari hálfleik en þetta var fyrsti leikur Belgans fyrir City síðan 1. nóvember þegar hann spilaði í fjórðu umferð enska deildarbikarsins. De Bruyne hefur ekki spilað leik í deildinni fyrir City síðan í lok október en tímabilið hefur einkennst af meiðslum til þessa hjá miðjumanninum knáa. Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Everton en var tekinn út af í seinni hálfleik. Gylfi hefur oft látið meira fyrir sér fara í leikjum Everton, enda gestirnir lítið í sókn í leiknum. Viðtal við Pep Guardiola Viðtal við Marco Silva Enski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn