Fótbolti

Emil meiddur er Frosinone náði jafntefli gegn AC Milan

Anton Ingi Leifsson skrifar
Úr leiknum í dag.
Úr leiknum í dag. vísir/getty
AC Milan náði ekki að vinna fallbaráttulið Frosinone á útivelli er liðin mættust í ítalska boltanum í dag.

Emil Hallfreðsson var ekki í leikmannahópi Frosinone en hann er enn frá vegna meiðsla. Hann verður væntanlega klár í mars eða apríl en hann gekkst undir aðgerð fyrr í þessum mánuði.

AC Milan hefur valdið vonbrigðum á þessu tímabili og það hélt áfram í dag er liðið náði ekki að skora gegn Frosinone á útivelli í dag.

Milan er í fimmta sætinu 28 stig, 21 stigi á eftir toppliði Juventus sem á einnig leik til góða. Milan er fimm stigum á eftir grönnunum í Inter sem eru í þriðja sætinu.

Frosinone er í fallsæti, því nítjánda, með tíu stig. Þeir eru fjórum stigum frá öruggu sæti í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×