Enski boltinn

Sjáðu fal­legt ein­stak­lings­fram­tak Gylfa og alla marka­veisluna úr Gutta­garði

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gylfi sýnir tilfinningar í leiknum í gær.
Gylfi sýnir tilfinningar í leiknum í gær. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson átti þátt í báðum mörkum Everton sem fékk 6-2 skell gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Everton komst yfir með marki Theo Walcott en var svo 3-1 undir í hálfleik eftir mörk frá Son Heung-min, Dele Alli og Harry Kane.

Christian Eriksen bætti við fjórða marki Tottenham áður en Gylfi minnkaði muninn fyrir Everton með glæsilegu einstaklingsframtaki.

Áður en yfir lauk bættu þeir Son Heung-min og Harry Kane við mörkum og öruggur 6-2 sigur Tottenham staðreynd.

Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan.



Klippa: FT Everton 2 - 6 Tottenham



Fleiri fréttir

Sjá meira


×