Forsætisráðherra Danmerkur, Lars Løkke Rasmussen, á nú í viðræðum við leiðtoga í öðrum Evrópuríkjum, þar á meðal Þýskalandi, Austurríki og Hollandi, um að setja upp sérstakar búðir fyrir hælisleitendur sem fengið hafa synjun.
Rasmussen vonast til að fyrstu skrefin verði tekin þegar á þessu ári. Hugmyndin gengur út á að setja upp búðirnar einhvers staðar í Evrópu en utan Evrópusambandsríkjanna.
Það er mat Rasmussen að koma eigi þeim fyrir sem synjað hefur verið um hæli í landi sem ekki er efst á lista hælisleitenda og þeirra sem smygla fólki.
Ræða búðir utan ESB
Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar

Mest lesið



Björguðu dreng úr gjótu
Innlent

Friðrik Ólafsson er látinn
Innlent




Dæla tölvupóstum á ráðherra
Innlent

Órói mældist við Torfajökul
Innlent
