Besiktas sektað um fúlgu fjár eftir að köttur hljóp inn á völlinn Anton Ingi Leifsson skrifar 7. júní 2018 07:00 Kötturinn í miklu stuði. vísir/getty
Tyrkneska félagið Besiktas hefur verið sektað af UEFA, meðal annars fyrir að óvæntur gestur hljóp inn á völlinn í leik liðsins í Meistaradeildinni fyrr í vetur. Köttur hljóp inn á völlinn í miðjum leik Besiktas gegn Bayern Munchen og er það eitt þeirra atvika sem Besiktas hefur verið kært fyrir. Liðin mættust í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar og er Bayern var samanlagt 7-0 yfir hoppaði kötturinn inn á völlinn. Honum leið greinilega vel því hann var í dágóða stund á vellinum. Öryggisverðir reyndu allt hvað þeir gátu til þess að ná óvænta gestinum og Michael Oliver, dómari, stöðvaði leikinn. Kötturinn tók þá ákvörðun að hoppa bara sjálfur upp í stúku og áfram hélt svo leikurinn. Besiktas fær sekt upp á 30 þúsund evrur fyrir meðal annars þetta atvik þar sem gagnrýnd er öryggisgæsla Besiktas. Einnig var alls kyns hlutum kastað í átt að vellinum og stigar voru hindraðir. Fyrir það fær Besiktas einnig sekt.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Þurfti að biðja allt liðið afsökunar: „Þetta var ekkert illa meint“ Fótbolti Dómari blóðugur eftir slagsmál Sport Strákarnir komnir í úrslit Handbolti Lést sex dögum eftir að hafa orðið meistari Sport Í beinni: West Ham - Liverpool | Enda árið á toppnum en með hversu mikið forskot? Enski boltinn Kærkominn sigur City Enski boltinn Grindvíkingar um daginn örlagaríka: „Í fyrsta sinn sem ég missi kúlið“ Körfubolti Ratcliffe áfram með niðurskurðarhnífinn á lofti Enski boltinn Ófarir Spurs halda áfram Enski boltinn Gamli maðurinn lét Littler svitna Sport Fleiri fréttir Jason Daði kom inn af bekknum og skoraði Forest skaust upp í annað sæti Ófarir Spurs halda áfram Í beinni: West Ham - Liverpool | Enda árið á toppnum en með hversu mikið forskot? Í beinni: Fiorentina - Juventus | Gerir Albert gömlu konunni grikk? Kærkominn sigur City Töpuðu fyrir Napoli með minnsta mun Ratcliffe áfram með niðurskurðarhnífinn á lofti Stefán Teitur og félagar kvöddu árið með sigri Þurfti að biðja allt liðið afsökunar: „Þetta var ekkert illa meint“ Atalanta missteig sig eftir ellefu sigra í röð Sara Björk jafnaði tvisvar fyrir Al-Qadisiya Cecilía í liði ársins Inter á toppinn eftir sigur á Sardiníu „Vonandi færir nýja árið okkur titla“ Ráku annan þjálfarann á tímabilinu Salah, Son og De Bruyne gætu farið frítt næsta sumar Gæti þurft að fylla vörnina af miðjumönnum Segir Hákon betri en Flekken: „Þetta lék bara í höndunum á honum“ Saka búinn í aðgerð og verður frá í meira en tvo mánuði Tugmilljónakostnaður bíður Víkinga Hákon 21. Íslendingurinn til að spila í efstu deild á Englandi Hákon kom inn á og hélt hreinu í fyrsta úrvalsdeildarleiknum Ronaldo segir að storminn muni lægja undir stjórn Amorim Skytturnar aftur upp í annað sæti eftir sigur gegn nýliðunum Enn eitt skráningarvesenið hjá Börsungum Veit að starfið gæti verið í hættu ef liðið fer ekki að vinna Freyr einnig í viðtal og einn erlendur Þrír boðaðir í viðtal: Víkingar gáfu KSÍ grænt ljós á að ræða við Arnar Emilía til Leipzig Sjá meira