Bæði verðlaun Íslands á Evrópuleikunum komu í golfi en þau skiluðu Íslandi upp í 24. sæti á verðlaunalista leikanna.
Axel og Birgir töpuðu naumlega 2/0 í úrslitaleiknum gegn Spánverjunum Pedro Oriol og Scott Fernandez. Úrslitaleikurinn var spennandi og náðu íslensku leikmennirnir að búa til hörkuspennu á lokakaflanum þrátt fyrir að vera komnir þremur holum á eftir þegar aðeins þrjár holur voru eftir.
Verðlaunaféð í liðakeppni karla á EM atvinnukylfinga. Birgir og Axel gætu skipt með sér 25,6 millj. kr. eftir hádegi í dag.
1. sæti = 100.000 Evrur= 12,8 millj. kr. per leikmann
2. sæti = 50.000 Evrur= 6,4 millj. kr.
3. sæti = 3,85 millj. kr. 4. sæti = 1,92 millj. kr.
— Golfsamband Íslands (@Golfsamband) August 12, 2018
Birgir Leifur og Axel fengu aftur á móti um 6,4 milljónir íslenskra króna hvor í sinn hlut sem er nú ágætis vikukaup.
Birgir og Axel lönduðu þar með öðrum verðlaunum sínum á þessu móti. Á laugardaginn fögnuðu þeir Evrópumeistaratitlinum í keppni blandaðra liða með Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur og Valdísi Þóru Jónsdóttur.
Axel, Birgir, Ólafía og Valdís skiptu á milli sín tæplega 4 milljónum kr. í verðlaunafé fyrir sigurinn á EM í blandaðri liðakeppni í gær. Fengu öll tæplega 9?6?0?.0?0?0? ÍSL KR. í sinn hlut. pic.twitter.com/Eo24tbJwyD
— Golfsamband Íslands (@Golfsamband) August 12, 2018
Það vekur þó athygli að mun lægra verðlaunafé var fyrir sigurinn í keppni blandaðra liða. Axel, Birgir, Ólafía og Valdís skiptu á milli sín tæplega 4 milljónum króna í verðlaunafé fyrir sigurinn. Þau fengu því um 960 þúsund krónur hver.
Það var því sexfalt hærra verðlaunfé í liðakeppni karla en í liðakeppni blandaðra liða.