Sögulegur sigur Bournemouth á Arsenal Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 14. janúar 2018 15:15 Fyrsti sigur Bournemouth á Arsenal í sögunni staðreynd vísir/getty Bournemouth vann 2-1 sigur á Arsenal á heimavelli sínum í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Sigurinn er sá fyrsti sem Bournemouth hefur nokkurn tíman unnið á Arsenal. Arsenal átti nokkur mjög góð færi snemma leiks, en náði ekki að nýta sér þau og það var markalaust þegar liðin gengu til hálfleiks. Hector Bellerin braut ísinn á 52. mínútu, en var í raun nokkuð heppinn að boltinn hafi endað í netinu því Asmir Begovic náði að verja boltann, en hann skoppaði af fæti Begovic og í netið. Bournemouth skoraði tvö mörk á fjögurra mínútna kafla um miðjan hálfleikinn, Callum Wilson skoraði það fyrra og Jordon Ibe skoraði sigurmarkið. Leikmenn Arsenal áttu mjög slæman dag á skrifstofunni og var baulað á þá af þeim stuðningsmönnum Arsenal sem gerðu sér ferð til Bournemouth í dag. Bournemouth náði að standa af sér öll áhlaup Arsenal, að undanskildu markinu, og skiluðu góðri varnarvinnu og var liðið verðlaunað með tveimur mörkum og verðskulduðum sigri. Arsenal situr enn í sjötta sæti úrvalsdeildarinnar, en bilið upp í fimmta, og í raun fjórða sæti þar sem Tottenham og Liverpool eru jöfn að stigum, er orðið fimm stig. Enski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn