Sport

Colts loksins komið með þjálfara

Magnús Ellert Bjarnason skrifar
Reich á hliðarlínunni sem sóknarþjálfari Eagles.
Reich á hliðarlínunni sem sóknarþjálfari Eagles. Vísir / Getty
Indianapolis Colts gaf frá sér yfirlýsingu síðasta þriðjudag þess efnis að Josh McDaniels yrði nýr þjálfari liðsins. 

Öllum að óvörum hætti McDaniels hins vegar við á síðustu stundu og skildi lið Colts eftir þjálfaralaust.

Nú hafa Colts hins vegar fundið sinn mann, en liðið tilkynnti rétt í þessu á heimasíðu sinni að liðið hefði komist að samkomulagi við Frank Reich, sóknarþjálfara Philadelphia Eagles, um að hann gerist þjálfari liðsins fyrir næsta tímabil.



Reich hefur þótt standa sig einstaklega vel sem sóknarþjálfari Eagles, en Eagles vann Superbowl, úrslitaleik NFL- deildarinnar, eins og flestum er kunnugt síðastliðinn sunnudag. 

Þá er bara að vona að Reich fái ekki bakþanka eins og kollegi hans McDaniels og standi við sitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×