Innlent

Prjóna, hekla og sauma fyrir bágstödd börn í Hvíta-Rússlandi

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Hópurinn kemur reglulega saman og prjónar í þágu góðs málefnis.
Hópurinn kemur reglulega saman og prjónar í þágu góðs málefnis. Vísir/Egill
Vaskur hópur kvenna kemur reglulega saman í húsnæði Rauða krossins í Mosfellsbæ og prjónar, heklar og saumar flíkur fyrir bágstödd börn í Hvíta-Rússlandi. Konurnar segja framtakið ekki aðeins vera í þágu góðs málefnis heldur sé það einnig hin besta skemmtun í góðum félagsskap.

„Föt sem framlag“ er verkefni á vegum Rauða krossins sem ef til vill einhverjir þekkja en hópurinn kemur alla jafna saman á miðvikudögum í og leggur stund á fjölbreytta handavinnu í þágu góðs málefnis.

„Það hafði komið fyrir nokkrum árum beiðni frá Hvíta-Rússlandi þar sem er bæði atvinnuleysi og fátækt, sérstaklega í dreifbýlinu. Þetta eru svona staðlaðir pokar sem við sendum, það er ákveðið í hverjum poka og við erum að búa það til,” segir Halla M. Hallgrímsdóttir, starfsmaður Rauða krossins, og handavinnikona með meiru, í samtali við Stöð 2.

Það eru ekki aðeins konurnar í Mosfellsbæ sem taka þátt í verkefninu heldur deildir Rauða krossins um allt land. Í fyrra var slegið met í fjölda poka sem sendir voru til Hvíta Rússlands eða alls um fjögur hundruð pokar. En hvað er eiginlega verið að prjóna?

„Það eru peysur og teppi og húfur og sokkar og svo saumum við oft buxur, það er oft vantar buxur, börnin slíta þeim,“ segir Halla. Það er svo ekki síður félagsskapurinn sem heillar en hann er ekki af verri endanum að sögn Höllu. „Nei veistu þetta er ofsalega gaman hjá okkur, þetta er bara eins og fínasti saumaklúbbur. Fáum okkur kaffi og með því og spjöllum [...] Þetta er engin skylda, þetta er bara ánægjunnar vegna. Þetta er bara virkilega gaman.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×