Innlent

Sex fengu milljón á mann

Samúel Karl Ólason skrifar
Heildarupphæð vinninga í útdrætti kvöldsins nam rúmum 98 milljónum og skiptist á 3.421 heppna miðaeigendur.
Heildarupphæð vinninga í útdrætti kvöldsins nam rúmum 98 milljónum og skiptist á 3.421 heppna miðaeigendur. Vísir/Valgarður
Sex miðaeigendur fengu eina milljón króna í vinning og sautján manns fengu 500 þúsund krónur í útdrætti kvöldsins hjá Happdrætti Háskóla Íslands. Þar að auki fengu þrír miðaeigendur tvö hundruð þúsund krónur.

„Það er óhætt að segja að árið fari vel af stað því heppnum Íslendingum fjölgaði um rúmlega 3.400 í útdrætti kvöldsins,” segir Úlfar Gauti Haraldsson, rekstrarstjóri flokkahappdrættis Happdrætti Háskóla Íslands í tilkynningu.

Heildarupphæð vinninga í útdrætti kvöldsins nam rúmum 98 milljónum og skiptist á 3.421 heppna miðaeigendur.

Milljónaveltan, sem var tíu milljónir króna, gekk ekki út og bætist því við veltu næsta mánaðar sem verður þá 20 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×