Skuggi á hús einnar fjölskyldu gæti eyðilagt drauma Abramovich Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 12. janúar 2018 07:00 Svona á nýi leikvangurinn að líta út, fái áætlanir að standa mynd/chelsea
Roman Abramovich, eigandi enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea, er með áætlanir um byggingu glæsilegs nýs leikvangs sem mun kosta í kringum milljarð punda og verða dýrasti leikvangur í Evrópu. Þær áætlanir eru hins vegar í hættu vegna einnar fjölskyldu sem býr í nágrenni Stamford Bridge. Fjölskyldan, sem hefur búið á heimili sínu í vestur Lundúnum í hálfa öld, setti inn formlega kvörtun vegna byggingaráætlananna í maí vegna þess að nýi leikvangurinn mun varpa varanlegum skugga á heimili þeirra. Búið var að samþykkja bygginguna í deilisskipulagi borgarinnar og hefur borgarstjóri Lundúna gefið grænt ljós á framkvæmdirnar. Forráðamenn Chelsea leita nú ráða hjá bæjaryfirvöldum og funda fulltrúar Hammersmith og Fulham á mánudag til að skera út um hvað skuli aðhafast. Chelsea bauð Crosthwaites fjölskyldunni sárabætur sem sagðar eru ganga á hundruðum þúsunda punda, en þær urðu ekki til þess að fjölskyldan tæki kvörtun sína til baka. „Byggingin hefur óásættanleg og skaðleg áhrif á Kensington- og Chelsea hverfin,“ sagði Rose, dóttir Crosthwaites hjónanna í bréfi til stuðnings máls þeirra. Fjölskyldan vill þó ekki bera sig á móti endurbótum á Stamford Bridge, heldur aðeins að austurstúkan verði endurhönnuð svo hún trufli síður. Enn á eftir að koma í ljós hvort Abramovich geti haldið áfram með endurbæturnar á Stamford Bridge, en leikvangurinn tekur í dag aðeins 41 þúsund manns í sæti, samanborið 60 þúsund sætum Emirates vallarins.
Enski boltinn Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Körfubolti Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Handbolti Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Fótbolti Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Albert sá sögulegan sigur strákana okkar og Martin stríddi Ítölum Körfubolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport HK gaf leik gegn Herði: „Ekki nýtt vandamál fyrir okkur á landsbyggðinni“ Handbolti Fleiri fréttir Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Carragher segir Salah vera eigingjarnan Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Guardiola samdi til ársins 2027 Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Sjá meira