Fjárfestingarfélagið Tækifæri hefur ákveðið að nýta sér forkaupsrétt að tæplega þriggja prósenta hlut í Jarðböðunum við Mývatn. Eftir viðskiptin á félagið ríflega 43 prósenta eignarhlut í baðstaðnum sem er metinn á um 1.950 milljónir króna.
Forkaupsrétturinn virkjaðist í vetur þegar gert var tilboð í um 6,5 prósenta hlut Skútustaðahrepps og nokkurra minni hluthafa í Jarðböðunum. Hlutirnir voru settir í söluferli í janúar, sem fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hafði umsjón með, en stjórn Tækifæris samþykkti að nýta sér forkaupsréttinn í síðasta mánuði.
Tækifæri, sem er stærsti hluthafi Jarðbaðanna, átti í lok síðasta árs 40,6 prósenta hlut í félaginu sem metinn var á liðlega 1.827 milljónir króna. Fram kemur í nýbirtum ársreikningi Tækifæris að umrætt virðismat byggi á tilboðinu sem gert var í áðurnefndan 6,5 prósenta eignarhlut í febrúar síðastliðnum. Telur fjárfestingafélagið viðskiptin besta tiltæka mælikvarðann á gangvirði eignarhlutarins í árslok 2017.
Eins og fram kom í Markaðinum í síðustu viku voru Jarðböðin metin á um 4,5 milljarða króna um síðustu áramót og jókst virði þeirra um 1,3 milljarða eða ríflega 40 prósent í fyrra. Til samanburðar var baðstaðurinn metinn á um 900 milljónir í lok árs 2014.
Tækifæri er sem fyrr segir stærsti hluthafi Jarðbaðanna en aðrir hluthafar eru meðal annars félag í eigu Bláa lónsins og Landsvirkjun.
Um 220 þúsund manns heimsóttu baðstaðinn í fyrra.
Nýttu sér forkaupsrétt að bréfunum
Tengdar fréttir
Jarðböðin við Mývatn metin á 4,5 milljarða
Jarðböðin við Mývatn voru um síðustu áramót metin á 4,5 milljarða króna og jókst virði þeirra um 1,3 milljarða eða ríflega 40 prósent í fyrra.
Baðstaðirnir þrír rukkuðu tíu milljarða
Tekjur Jarðbaðanna við Mývatn námu 725 milljónum króna í fyrra og jukust þær um 33 prósent. Rúmlega 200 þúsund gestir borguðu þar af 581 milljón í aðgangseyri.
Akureyri seldi hlutabréfin en virði Jarðbaðanna rauk upp
Virði Jarðbaðanna við Mývatn nam 3,2 milljörðum króna við síðustu áramót. Bréfin sem Akureyrarbær seldi í Tækifæri á 116 milljónir eru nú metin á yfir 195 milljónir.