Sýningin KYRRÐ mun standa yfir til 12. ágúst næstkomandi.Mynd/Owen Fiene
Myndlistakonan Jóna Hlíf Halldórsdóttir opnaði um helgina einkasýningu sína KYRRÐ í Kjallaranum í versluninni Geysir Heima. Á opnuninni spilaði Gréta Rún Snorradóttir fyrir sýningargesti. Léttar veitingar voru í boði og eins og sést á myndunum var gleðin við völd á Skólavörðustígnum þetta kvöld.
„Jóna Hlíf sýnir ný verk sem samanstanda af gólfskúlptúrum og textaverkum. Á sýningunni er unnið út frá nýrri frásögn og með nýja efniviði. Í forgrunni er leikur með konseptin "afstrakt" og "form" með hliðsjón af því hvað felst í að eitthvað sé staðbundið. Líkt og í fyrri verkum Jónu Hlífar er einnig unnið með tungumálið, orð og samspil ljóss, forms og lita,“ segir um sýninguna.
Jóna Hlíf Halldórsdóttir ásamt sýningargestum.Mynd/Owen Fiene„Öll verkin tengjast endurminningum um staði á eða nálægt hálendi úr misgömlum ferðalögum. Að baki hverju verki er mynd af stað sem reynt er að lýsa í eins fáum orðum og hægt er, með því að draga fram kjarnann úr endurminningunni af upplifuninni. Það sem sameinar eru heiðríkja, tærleiki og kyrrð - að minnsta kosti í huganum.“
Sýningin mun standa yfir til 12. ágúst næstkomandi. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir sem Owen Fiene tók á opnunarkvöldinu.