Fjærhlið tunglsins heimsótt í fyrsta skipti Kjartan Kjartansson skrifar 6. desember 2018 15:36 Fjærhlið tunglsins snýr alltaf frá jörðinni. Þessa mynd tók bandaríska geimfarið Lunar Reconnaissance Orbiter af henni í október í fyrra. NASA/Goddard Space Flight Center/Arizona State University
Kínverska geimfarið Chang‘e 4 stefnir að því að verða það fyrsta til að lenda á fjærhlið tunglsins þegar því verður skotið á loft á morgun. Gangi allt að óskum á geimfarið og könnunarjeppi þess að lenda á suðurpóli tunglsins í byrjun næsta árs. Markmið leiðangursins er að rannsaka yfirborðið og efnasamsetningu þess, meðal annars til þess að reyna að varpa ljósi á samsetningu skorpu og möttuls tunglsins. Líffræðilegar tilraunir verða um borð sem tugir kínverskra háskóla hafa átt þátt í að hanna.Space.com segir að Chang‘e 4 sé einnig ætlað að gera athuganir á daufum útvarpsbylgjum. Fjærhlið tunglsins sé einn besti staðurinn fyrir slíkar rannsóknir. Hún snýr alltaf frá jörðinni og er því laus við truflanir frá jónahvolfi jarðar, útvarpssendingum manna og annarri geislun frá jörðinni. Geimfarinu verður skotið á loft klukkan 18:30 að íslenskum tíma á morgun. Ferðalagið til tunglsins á að taka 27 daga. Þá lendir Chang‘e 4 í Von Kármán-gígnum í Suðurpólsdæld tunglsins. Kínverjar hafa þegar komið gervitungli á braut á milli jarðarinnar og tunglsins sem til hægt verði að hafa samskipti við geimfarið á fjærhliðinni.
Geimurinn Tækni Vísindi Mest lesið Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Ríkisstyrkir til rafbílakaupa enduðu í vasa þeirra tekjuhæstu Innlent Lækka laun bæjarfulltrúa og takmarka opnunartíma í sundi til að borga kennurum Innlent Dæmdir í tengslum við einn stærsta stuld Íslandssögunnar Innlent Fastur á Keflavíkurflugvelli í fjóra sólarhringa án alls Innlent Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Erlent Fulltrúi borgarinnar harðneitað að tala nema á íslensku Innlent Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Innlent Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Erlent Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira