Kane tryggði Tottenham sigurinn á síðustu stundu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 25. febrúar 2018 13:45 Harry Kane skallar boltann yfir Wayne Hennessey Vísir/Getty Harry Kane tryggði Tottenham sigur í Lundúnaslagnum gegn Crystal Palace með marki á loka mínútum leiksins á Selhurst Park. Tottenham hafði legið á marki Palace í 88 mínútur án árangurs þar til Harry Kane skallaði hornspyrnu Christian Eriksen í átt að marki. Wayne Hennessey var með fingur í boltanum en náði ekki að koma í veg fyrir að hann læki í marknetið. Roy Hodgson og leikmenn hans höfðu varist vel allan leikinn og markið blaut tuska í andlitið, en þó verður að segjast að Tottenham átti skilið að vinna þennan leik. Hvítklæddir gestirnir áttu þrettán marktilraunir, þar á meðal nokkur dauðafæri, á meðan Palace átti fimm skot að marki. Sigurinn skýtur Tottenham upp fyrir Chelsea í fjórða sæti deildarinnar en þeir bláklæddu leika við Manchester United í dag. Enski boltinn