Bandaríkjaforsetinn Donald Trump var kominn á fremsta hlunn með að reka sérstaka rannsakandann Robert Mueller, sem kannar tengsl kosningaliðs forsetans við Rússa, í júní í fyrra. Ekkert varð þó af uppsögninni vegna þess að lögmenn og ráðgjafar forsetans hótuðu að segja sjálfir upp störfum ef af yrði.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í umfjöllun New York Times en þar er haft eftir forsetaráðgjafanum Donald McGahn að brottrekstur Muellers hefði verið „stórslys“ fyrir embættið.
Mikið skrið virðist vera komið á rannsókn Muellers á meintri aðkomu rússneskra stjórnvalda að forsetakosningunum vestanhafs árið 2016 en fjölmargir háttsettir embættismenn í Bandaríkjunum hafa verið yfirheyrðir á síðustu vikum vegna rannsóknarinnar.
Sjá einnig: Trump þrýsti á þingmenn um að hætta rannsókn á Rússatengslum
Meðal þess sem rannsóknarnefnd Muellers kannar er hvort forsetinn og ráðgjafar hans hafi hindrað framgang réttvísinnar þegar James Comey, fyrrverandi yfirmaður alríkislögreglunnar, var rekinn á síðasta ári.
Robert Mueller fékk veður af því að forsetinn vildi láta reka sig einhvern tímann á síðustu mánuðum ef marka má umfjöllun NY Times.
Um svipað leyti og orðrómurinn um að Mueller væri að undirbúa málsókn gegn forsetanum sagði Donald Trump að þrennt kæmi í veg fyrir það að sérstaki rannsakandinn gæti talist hlutlaus í rannsókn sinni.
Að mati Trumps gera eftirfarandi þættir Mueller vanhæfan til að halda rannsókninni áfram:
- Að Mueller hafi árið 2011 sagt upp áskrift sinni að golfklúbbi Trumps í Virginu-ríki vegna deilna um greiðslu félagsgjalds.
- Að Mueller gæti ekki verið hlutlaus því hann hafi starfað fyrir lögfræðistofu sem rak mál gegn tengdasyni forsetans.
- Að Mueller hafi verið boðið að taka við embætti stjórnanda FBI daginn áður en hann var skipaður sérstakur rannsakandi.
Hvíta húsið hefur ekki brugðist við frétt New York Times sem byggir á fjórum nafnlausum heimildum. Washington Post birti skömmu síðar eigin frétt um málið sem byggði á ummælum tveggja einstaklinga sem þekkja til uppsagnaráhuga forsetans.
Trump ætlaði að reka Mueller
Tengdar fréttir
Trump segist hlakka til að ræða við sérstaka rannsakandann
Forsetinn gaf í skyn við fréttamenn að hann væri til rannsóknar fyrir að hindra framgang réttvísinnar vegna þess að hann hefði "barist á móti“.
Trump og starfsmenn hans gagnrýna Alríkislögregluna harðlega
Forsetinn vandaði yfirmönnum FBI ekki kveðjuna í ræðu sem hann hélt í æfingarbúðum stofnunarinnar.
Rannsókn Mueller nálgast Bandaríkjaforseta sjálfan
Forstöðumenn leyniþjónustu og dómsmála í Bandaríkjunum hafa undanfarið svarað spurningum rannsakenda um samskipti sín við Trump forseta.