Alþingi kemur saman til funda í næstu viku í tilefni af 100 ára fullveldisafmælinu. Þingfundur hefst 13:30 þriðjudaginn 17. júlí. Daginn eftir, 18 júlí, verður hátíðarfundur Alþingis að Lögbergi á Þingvöllum og hefst sá fundur klukkan 14:00.
Fyrr í morgun var útbýtt á vef þingsins tveimur þingmálum, tillögu formanna stjórnmálaflokkanna um verkefni í þágu barna og ungmenna, svo um rannsóknir er stuðli að sjálfbærni auðlinda hafsins og nýtt hafrannsóknaskip. Jafnframt var útbýtt tillögu forsætisnefndar um útgáfu tveggja rita í samvinnu við Hið íslenska bókmenntafélag, um Þingvelli í íslenskri myndlist og um bókmenntasögu Íslands.
Á þriðjudaginn verða þingfundirnir tveir. Á fyrri fundinum verður mælt fyrir báðum tillögunum og á seinni fundinum verður tillaga forsætisnefndar afgreidd, svo og samþykkt um hlé á þingstörfum frá 18. júlí til 11. september.
Hátíðarfundurinn á Þingvöllum hefst klukkan 14:00 að Lögbergi. Á þeim fundi fer fram síðari umræða um tillögu formanna flokkanna og verður hún síðan afgreidd með atkvæðagreiðslu. Allir átta formenn flokkanna munu tala á hátíðarfundinum.
Tvö mál afgreidd á Alþingi í tilefni fullveldisafmælisins

Tengdar fréttir

Vonbrigði með synjun Alþingis
Sýrlenskt flóttafólk á Akureyri er vonsvikið eftir að hafa ekki fengið ríkisborgararétt í vor og furðar sig á ógegnsæi ferlisins. Alþingismaður segir ástæður fyrir því að ferlið er jafn ógegnsætt og raun ber vitni.

Alþingi áformar að birta launaupplýsingar fyrrverandi þingmanna
Alþingi áformar að birta upplýsingar um laun og fastar kostnaðargreiðslur þingmanna allt aftur til ársins 2007