Newcastle tók síðustu von Chelsea Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 13. maí 2018 16:00 Leikmenn Newcastle máttu fagna í dag vísir/getty Chelsea verður ekki með í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili en liðið endaði í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir tap gegn Newcastle í lokaumferðinni í dag. Chelsea þurfti sigur í Newcastle og treysta á það Liverpool tapaði fyrir Brighton til þess að ná í síðasta sætið í Meistaradeildinni. Lærisveinar Jurgen Klopp unnu hins vegar stórsigur og Englandsmeistarar síðasta árs þurfa að sætta sig við fimmta sætið. Gestirnir voru lakari aðilinn í leiknum í dag og lentu undir snemma leiks eftir að Dwight Gayle skallaði boltann í netið af stuttu færi. Ayoze Perez skoraði svo tvö mörk í seinni hálfleik og tryggði Newcastle 3-0 sigur. Thibaut Courtois þurfti nokkrum sinnum að hafa sig allan við að verjast sóknum Newcastle á meðan Chelsea var lítið í færum. Newcastle lýkur keppni í tíunda sæti en Chelsea eins og áður segir í því fimmta. Enski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: ÍA - Víkingur 3-4 | Danijel Dejan Djuric tryggði Víkingi dramatískan sigur Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Draumaúrslitaleikurinn verður að veruleika Íslenski boltinn