Hiti á norðurskautinu hefur á sumum stöðum verið meira en 25°C hærri en vanalega í febrúar. Norðan 80. breiddargráðu norður hefur meðalhitinn verið um 6°C hærri á fyrstu mánuðum ársins en í venjulegu árferði.
Washington Post segir frá því að hitinn á Morris Jesup-höfða, nyrstu veðurathugunarstöð heims nyrst á Grænlandi, hafi verið yfir frostmarki í meira en sólahring frá mánudegi fram á þriðjudag. Það gerist þrátt fyrir að sólin hafi sest þar í október og rísi ekki aftur fyrr en í mars.
Ástæðan er rakin til hlýs lofts sem flæðir úr öllum áttum inn á norðurskautið. Í norðurhluta Alaska hefur hitastigið verið allt að 25°C yfir meðaltali. Hitamet fyrir árstíma var slegið í Utquagvik þar sem hitinn náði -1°C. Það er 22°C yfir meðaltali þar.
Hitinn gæti farið yfir frostmark á norðurpólnum
Útbreiðsla hafíssins á norðurskautinu hefur aldrei mælst minni miðað við árstíma nú í janúar samkvæmt tölum Haf- og loftslagsstofnunar Bandaríkjanna (NOAA).
Hlýindakaflar af þessu tagi hafa verið reglulegir viðburðir á norðurskautinu síðustu vetur. Hitinn mældist langt yfir meðaltali veturna 2015 til 2016 og 2016 til 2017. Loftslagslíkön spá því að hlýindi af þessu tagi séu líklegri á hlýnandi jörðu þar sem hlýir loftstraumar eigi greiðari leið norður á bóginn þegar hafísinn á norðurskautinu hopar.
Spáð er áframhaldandi hlýindum á norðurskautinu næstu daga. Hitinn á sumum stöðum gæti orðið allt að 34°C hærri en vanalega. Á norðurpólnum sjálfum gæti hitinn jafnvel farið yfir frostmark á fimmtudag og sunnudag.
Allt að 25 gráðum hlýrra en vanalega í hitabylgju á norðurskautinu

Tengdar fréttir

Hnattræn hlýnun gæti leyst kvikasilfur á norðurhjara úr læðingi
Þiðnun freðmýra á norðurskautinu getur haft margþættar og grafalvarlegar afleiðingar fyrir loftslag og umhverfi jarðar.

Kemur á óvart hversu lítið hlýnun jarðar dróst saman eftir metár
Búist var við að árið 2017 yrði svalara en árin tvö á undan eftir að áhrifa El niño hætti að gæta. Sérfræðingur Veðurstofunnar átti von á tvöfalt meiri kólnun.

Sjávarstaða næstu alda gæti ráðist á næstu fimm árum
Tafir á loftslagsaðgerðum núna hafa áhrif langt inn í framtíðina. Yfirborð sjávar gæti hækkað um 70-120 sentímetra fyrir árið 2300 jafnvel þó að markmið Parísarsamkomulagsins náist.