Innlent

Sóttu slasaða konu við Grenivík

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Konan hafði slasast á fæti við göngu í fjalllendi rétt norðan við Grenivík.
Konan hafði slasast á fæti við göngu í fjalllendi rétt norðan við Grenivík. Björgunarsveitir í Eyjafirði
Björgunarsveitir í Eyjafirði voru laust eftir klukkan 11 í dag boðaðar út vegna slasaðrar konu við Grenivík. Konan hafði slasast á fæti við göngu í fjalllendi rétt norðan við Grenivík. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá björgunarsveitinni.

Björgunarsveitarfólk notaði sjúkrabörur til koma henni niður fjalllendið og að sjúkrabílnum.

Laust fyrir klukkan tvö í dag var konan síðan flutt til aðhlynningar á sjúkrastofnun á Akureyri.

Björgunarsveitarfólk þurfti að bera konuna í sjúkrabílinn.Björgunarsveitir í Eyjafirði



Fleiri fréttir

Sjá meira


×