Trúarleg lotning og húmor og léttleiki 30. október 2018 07:00
Víkingur Ólafsson Verk eftir J.S. Bach Útgefandi: Deutsche Grammophone Þegar ég var að læra á píanó í Tónlistarskólanum í Reykjavík þurfti ég að æfa Bach. Það átti að vera svo hollt, en ég þoldi hann ekki. Fjölröddunin í tónlist hans virkaði eins og þurr stærðfræði, laglínurnar virtust geldar, strúktúrinn andlaus. Það var ekki fyrr en ég var orðinn rúmlega tvítugur að ég rakst á upptökur með Sviatoslav Richter þar sem hann spilaði prelúdíurnar og fúgurnar eftir Bach. Túlkun hans var svo full af sannfæringarkrafti, tignarleika og heiðríkju að það var eins og að heyra einhvern andlegan meistara tala. Ég sá allt í einu Bach í nýju ljósi, og eftir það hef ég elskað hann. Mér finnst sennilegt að geisladiskurinn með Víkingi Heiðari Ólafssyni eigi eftir að hafa viðlíka áhrif á unga hlustendur. Víkingur leikur þar alls konar tónlist eftir Bach og túlkun hans er himnesk. Ólíkt Richter er þetta ekki heildarflutningur á einhverri einni tegund verka, heldur allt mögulegt. Margt af því eru umritanir á verkum fyrir önnur hljóðfæri, m.a. gavotte úr fiðlupartítu nr. 3 sem Rakhmanínov snaraði yfir á píanó. Önnur grípandi umritun er úr smiðju Busonis, sálmaforleikurinn Nun komm der Heiden Heiland, þrungin dásamlegri andakt. Hvert svo sem viðfangsefnið er þá er leikur Víkings tær og agaður, en um leið gæddur ríkulegri tilfinningu. Bach skrifaði engar leiðbeiningar til flytjenda í nótnahandritin, sem hefur haft þær afleiðingar að framsetning tónlistar hans getur verið mjög ólík frá einum flytjanda til annars. Víkingur nálgast hann af djúpri tilfinningu, en leikur hans er samt miklu agaðri en þegar hann flutti Bach á tónleikum í Hörpu fyrir nokkrum árum. Þá einkenndist túlkunin af nokkurri tilfinningasemi sem fór tónskáldinu ekki sérlega vel. Gaman er að heyra hve Víkingur hefur vaxið sem listamaður síðan þá. Píanóplötur með tónlist Bachs eru venjulega helgaðar verkum sem hann samdi fyrir sembal, forföður píanósins. Þau eru vissulega margbrotin, en Bach var samt mun víðfeðmari. Kantöturnar hans, svo ekki sé minnst á messurnar, með öllum sínum aríum og kórum, eru stórbrotnar. Þá eru ótalin orgelverkin, alvöruþrungin og andaktug. Víkingi tekst að draga upp miklu heillegri mynd af Bach en ella með því að hafa umritanir þessara tónsmíða á geisladiskinum. Umritanirnar, sem voru í höndunum á ólíkum meisturum, eru skemmtilega fjölbreyttar. Allt frá snerpu Rakhmanínovs yfir í draumkennda hugleiðingu Silotis, sem er ein sú magnaðasta. Víkingur sjálfur hefur líka umritað aríu og gert það afburðavel, flæðið í henni er óheft, raddsetningin lokkandi. Þessi sterka heildarmynd af Bach á geisladiskinum er aðdáunarverð. Þarna er einhvern veginn allt sem hægt er að hugsa sér. Trúarleg lotning fyrir kosmískum víddum, en einnig húmor og léttleiki. Á köflum bregður svo fyrir áðurnefndri stærðfræðilegri rökfestu; Bach sem kennari er þá ekki langt undan. Maður hefur heyrt að hann hafi verið strangur, jafnvel slegið á puttana á nemendunum ef þeir spiluðu illa. Ég get ekki ímyndað mér hann gera það í tilfelli Víkings. Jónas SenNiðurstaða: Víkingur spilar meistaralega og dregur fram óvanalega heilsteypta mynd af Bach.
Birtist í Fréttablaðinu Menning Mest lesið Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns Lífið „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Lífið María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Lífið Frestar tónleikaferðalagi vegna andláts Payne Lífið Krakkatían: Flugfélög, landafræði og krakkalög Lífið Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Lífið Er alltaf hrædd Lífið „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó Lífið Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Lífið Fleiri fréttir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 Margmenni í sköpunargleði og stuði á safninu Ólafur Elíasson tekur yfir Piccadilly Circus og Times Square Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Sjá meira