Kallar eftir rannsókn á öryggi hoppukastala Stefán Ó. Jónsson skrifar 3. júlí 2018 09:48 Ava-May Littleboy lést á sunnudag. BBC
Breskur þingmaður kallar eftir því að hoppukastalar og önnur uppblásin leiktæki verði tímabundið bönnuð í landinu. Þriggja ára stúlka lést eftir að hafa kastast um sex metra upp í loftið þegar hoppukastali sprakk á strönd í Norfolk í austurhluta Englands á sunnudag. Önnur stúlka, sem var sjö ára, lét lífið þegar hoppukastali fauk í sterkri vindhviðu við Harlow árið 2016.Sjá einnig: Stúlka lét lífið eftir að hoppukastali sprakk Þingmaðurinn Robert Halfon kallar eftir tafalausri rannsókn á þeim reglum og lögum sem gilda um notkun og viðhald á hoppuköstulum í Bretlandi.After two horrific tragedies, Government need to look at update of regulations and inspection regime and consider a temporary ban on bouncy castles in public areas until we can be sure that they are safe. https://t.co/pjXom7r5DT— Robert Halfon MP (@halfon4harlowMP) July 1, 2018 „Það ætti að setja tímabundið bann á notkun hoppukastala og annarra uppblásinna leiktækja á opnum svæðum, þangað til að við getum verið viss um að þau séu örugg,“ er haft eftir Halfon á vef breska ríkisútvarpsins.Hann bætir við að tvö andlát á tveggja ára tímabili undirstriki mikilvægi þess að bregðast við vandanum. Því sé réttast að byrja á að kafa ofan í regluverkið sem umlykur hoppukastalanotkun. „Við getum ekki hætt á að eitthvað þessu líkt gerist aftur.“ Fjölmargir hafa minnst hinnar þriggja ára gömlu Ava-May Littleboy, sem lést á sunnudag. „Hún var engin venjuleg stelpa, hver sá sem kynntist henni mun aldrei geta gleymt henni,“ segja fjölskyldumeðlimir hennar. Blóm og leikföng hafa verið lögð í sandinn þar sem Littleboy lést. Fjölmargir voru að njóta sólarinnar á ströndinni þegar slysið varð. Sjónarvottar segja að kastalinn hafi „sprungið“ og við það hafi stúlkan kastast upp í loftið. Sjúkralið var mætt á staðinn um fjórum mínutum eftir að fyrstu tilkynningar bárust neyðarlínu.Blóm og leikföng hafa verið lögð við hoppukastalann sem sprakk, til minningar um Littleboy.BBC
Tengdar fréttir Stúlka lét lífið eftir að hoppukastali sprakk Ung stúlka lét lífið eftir að hafa kastast um sex metra upp í loftið þegar hoppukastali sprakk á strönd í Norfolk í austurhluta Englands fyrr í dag. 1. júlí 2018 21:05 Mest lesið Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Netanyahu heitir hefndum Erlent Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Erlent Leggja til neyðaraðgerðir til að bregðast við „ófremdarástandi“ Innlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent „Með því alvarlegra sem ég hef séð frá Vinnueftirlitinu“ Innlent Segir gagnrýnina ósvífna og ósanngjarna Innlent Mælirinn fullur vegna vanvirðingar á slysstað Innlent Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Erlent Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Sjá meira
Stúlka lét lífið eftir að hoppukastali sprakk Ung stúlka lét lífið eftir að hafa kastast um sex metra upp í loftið þegar hoppukastali sprakk á strönd í Norfolk í austurhluta Englands fyrr í dag. 1. júlí 2018 21:05