Sport

Guðni Valur náði ekki í úrslit

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Guðni Valur Guðnason
Guðni Valur Guðnason Vísir/AFP
Guðni Valur Guðnason er úr leik í keppni í kringlukasti á EM í frjálsum íþróttum. Hann var nokkuð frá sínu besta í undanriðlunum í morgun.

Fyrir mótið átti Guðni best 65,53 metra á árinu. Það þurfti að kasta að minnsta kosti 64 metra til þess að komast örugglega í úrslit í Berlín eða vera á meðal 12 efstu.

Guðni kastaði best 61,63 metra í annari tilraun. Hann gerði ógilt í fyrstu tilraun og kastaði 57,39 metra í þeirri þriðju.

Það skilaði honum 8. sæti í B riðli og 16. sæti í heildina sem dugði ekki til þess að komast í úrslit. 62,19 var 12. besti árangurinn og Guðni því ekki langt frá því að komast áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×