Swansea daðrar enn við falldrauginn eftir tap gegn Chelsea Arnar Geir Halldórsson skrifar 28. apríl 2018 18:15 Cesc Fabregas leggur boltann í netið visir/getty Chelsea marði sigur á lánlausum Swansea mönnum þegar liðin mættust á Liberty leikvangnum í Wales í dag í ensku úrvalsdeildinni. Mikilvægur sigur fyrir Antonio Conte og félaga sem eygja enn von um Meistaradeildarsæti. Cesc Fabregas skoraði strax á fjórðu mínútu leiksins eftir undirbúning Eden Hazard og reyndist það eina mark leiksins. Chelsea er nú tveimur stigum á eftir Tottenham sem situr í fjórða sætinu mikilvæga en síðarnefnda liðið á leik til góða gegn Watford á mánudag. Swansea hinsvegar er einu stigi frá fallsvæðinu þegar þrjár umferðir eru eftir. Enski boltinn