Jafntefli hjá Burnley og liðið með níu fingur á Evrópusæti 28. apríl 2018 16:00 Jóhann Berg Guðmundsson. vísir/getty Jóhann Berg Guðmundsson spilaði allan leikinn fyrir Burnley sem gerði markalaust jafntefli við Brighton á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Mikið jafnræði var með liðunum en Burnley-menn áttu þó fleiri tilraunir í átt að marki gestanna. Ekkert mark var þó skorað og lokatölur 0-0. Burnley er í sjöunda sætinu með 54 stig, sex stigum á undan Everton sem er sæti neðar en stigið nánast tryggði Burnley Evrópusæti. Everton þarf að vinna upp sex stiga forskot auk þess að vinna upp fimmtán marka markamun sem skilja liðin að. Brighton er í fjórtánda sætinu með 37 stig. Enski boltinn