Mál Stone fór fyrir svokallaðan ákærudómstól. Slíkir dómstólar eru skipaðir kviðdómendum sem meta hvort saksóknarar hafi nægilega sterkt mál í höndunum til að gefa út ákærur eða krefjast gagna og upplýsinga. Leynd ríkir um störf ákærudómstóla í bandarísku réttarkerfi og var ákæran ekki opinberuð fyrr en Stone hafði verið handtekinn.
Ákæruna má sjá hér á vef Dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna.
Meðal annars snýr ákæran að því að Roger Stone hafi sagt starfsmönnum framboðs Trump frá því að Wikileaks ætlaði að birta upplýsingar sem kæmu niður á Hillary Clinton, áður en það var opinbert að samtökin ætluðu að birta tölvupósta sem rússneskir útsendarar stálu úr tölvukerfi landsnefndar Demókrataflokksins.
CNN hefur birt myndband af því þegar Stone var handtekinn á heimili sínu í Fort Lauderdale.
"FBI. Open the door.”
Watch exclusive CNN footage of the FBI arresting longtime Trump associate Roger Stone. Stone has been indicted by a grand jury on charges brought by special counsel Robert Mueller. https://t.co/ZQCuuxLHAGpic.twitter.com/moQwNndB91
— CNN Politics (@CNNPolitics) January 25, 2019
Eftir það sagði Stone að umrædd samskipti hefðu farið í gegnum millilið.
Hann var spurður út í málið af minnst tveimur þingnefndum og rannsakendum FBI. Í ákærunni segir að hann hafi ítrekað logið til um samskipti sín við Wikileaks og sagt að hann byggi ekki yfir gögnum um þessi samskipti.
Þá á hann að hafa reynt að fá vitni til að segja rannsakendum ósatt. Um er að ræða útvarpsþáttastjórnandann Randy Credico sem er sagður hafa verið í samskiptum við Julian Assange árið 2016.
Stone sagði háttsettum starfsmönnum framboðs Trump frá því í júní og júlí 2016 að Wikileaks ætluðu að birta upplýsingar sem kæmu niður á framboði Hillary Clinton, mótframbjóðanda Trump.
Eftir að fyrstu póstarnir voru birtir þann 22. júlí það ár ræddu starfsmenn framboðsins við Stone um hvaða upplýsingar yrðu birtar í framhaldi af því. Þá sendi Stone tölvupóst á ónafngreindan mann og bað hann um að komast að því hvað Wikileaks ætluðu að birta til viðbótar.
Ónafngreindi maðurinn, sem sagður er vera stjórnmálaskýrandi sem starfað hafi fyrir vefmiðil, áframsendi póst Stone til félaga síns í Bretlandi, sem er ekki nafngreindur en er sagður hafa verið stuðningsmaður Trump.
Stjórnmálaskýrandinn svaraði Stone seinna meir og sagði að „vinurinn í sendiráðinu hefði undirbúið tvær birtingar til viðbótar“. Eina í ágúst og eina í október og þær væru skipulagðar með þeim hætti að þær myndu „valda miklum skaða“, væntanlega á framboði Clinton.
Hann skrifaði enn fremur að upplýsingar sem Wikileaks ætlaði að birta kæmu niður á góðgerðasamtökum Hillary og Bill Clinton, The Clinton Foundation.
Í kjölfar þess sagðist Stone opinberlega hafa átt í samskiptum við Julian Assange og hann teldi að frekari gögn frá Wikileaks myndu snúa að áðurnefndum góðgerðasamtökum.